Skip to product information
Brúðarplattar
19.900 kr
Blómin í brúðarvendinum endast aðeins í nokkra daga en með þessari leið er hægt að varðveita brúðarvöndinn í fallegu listaverki um ókomna tíð. Fullkomin leið til að minnast þessa fallega dags.
Úr blómunum í vendinum eru steyptir fallegir veggplattar úr gifsi. Gott er að geyma brúðarvöndinn í vatni og koma honum til okkar í Hornið sem fyrst. Því ferskari blóm því betra.
Ef þetta er gjöf til brúðhjónanna fylgir með lítil gjafa askja með gjafabréfi og litlu sýnishorni.
Innifalið í verðinu eru 2-3 veggplattar, fer eftir stærð og gerð blómanna. Hægt er að bæta við auka platta fyrir 7900 kr.