Gleym-mér-ei

Gleym-mér-ei

Gleym-mér-ei styrktarfélag er til staðar fyrir þau sem missa á meðgöngu og í/eftir fæðingu. Tilgangur félagsins er að styrkja málefni tengt missi barna svo að lítil ljós fái að lifa áfram í minningunni.

Í október 2023 efndi ég til söfnunar fyrir Gleym-mér-ei styrktarfélags. Þá fór 30% af allri sölu á gleym-mér-ei plöttunum mínum beint til félagsins. Samtals safnaði ég 

Nýlega lét félagið gera litlar lyklakippur fyrir þau sem missa á fyrstu 12 vikum meðgöngu. Lyklakippan er stálplatti með litlju hjarta sem hægt er að fjarlægja og fara með þar sem barnið er jarðsett. Félagið fékk mig til að útbúa lítið minningaker sem var sett í duftreitinn í Fossvogskirkjugarði og þar getur fólk sett litlu hjörtun ef því hugnast svo. 

Ég er sjálf svo lánsöm að hafa ekki upplifað þá sorg að missa á meðgöngu eða eftir fæðingu og mun vonandi aldrei gera það. Félagið hefur þó þurft að standa við bakið á fólki mér kært og því er starfsemin mér afar mikilvæg. 

Takk fyrir ykkur, Gleym-mér-ei styrktarfélag