Brúðarplattar

Brúðarplattar

Kæru brúðhjón

Innilega til hamingju með stóra daginn ykkar.

Blómin í brúðarvendinum endast aðeins í nokkra daga en með þessari gjöf fáið þið tækifæri til þess að varðveita brúðarvöndinn ykkar í fallegu listaverki um ókomna tíð. Fullkomin leið til að minnast þessa fallega dags.

Úr vendinum verða gerðir 2–3 handgerðir veggplattar, fer eftir stærð og gerð blómanna. Ef þið eruð með séróskir um stærð eða fjölda endilega látið mig vita af því svo ég geti mætt ykkar þörfum. 

Fyrstu skrefin eru að passa vel upp á vöndinn, geyma hann í vatni og reyna koma honum sem fyrst til okkar. Því ferskari sem blómin eru því betra. Komið með vöndinn eins fljótt og hægt er, helst innan 1–3 daga. Því ferskari sem blómin eru, því fallegri verða smáatriðin í lokaútkomunni.

Til að afhenda vöndinn hafið samband við Steinunni í Horninu creative studio, Brúarstræti 12 á Selfossi. Best er að hafa samband í gengum instagram síðu Hornsins, einnig er hægt að senda tölvupóst hér í gengum þessa síðu eða taka upp tólið og hringja í Steinunni í síma 849-3846. 

Ekki hafa áhyggjur ef eitt eða tvö blóm hafa brotnað, vöndurinn er ekki alveg eins ferskur og á brúðkaupsdaginn, það eru nokkrir dagar liðnir. Ég vel þau blóm sem henta best og geri mitt allra besta til að skapa fallega og persónulega minningu. Ef þið eruð með sérstakar óskir endilega látið vita. 

Ferlið getur um það bil eina viku, frá því að vöndurinn er afhentur og þar til plattarnir eru tilbúnir til afhendingar. Þeir afhendast með veggfestingum. Steinunn mun svo láta vita þegar þeir eru tilbúnir til afhendingar. 

Ef þið hafið einhverjar fleiri spurningar ekki hika við að senda okkur línu.